|
Interflon teflon smurvörurnar eru hágæða efni sem hafa fyrir löngu sannað gildi sitt við íslenskar aðstæður. Mjög breitt úrval af smurvörum og olíum. Leitið ráðgjafar hjá sölumanni. |
Þurr teflonfilma notuð sem tæringavörn á málma, sleipiefni í síló og á staði sem óæskileg efni eiga til að festa sig á. Efnið þornar á 30 mín og nær fullum styrk á 12 tímum.
Umbúðir: 1 og 10 ltr
Teflon bætiefni á gírkassa og gírmótora. Lítið viðnám olíunnar léttir keyrslu gíranna sem og gírskiptinguna. Lækkun hitastigs, tæringavörn og viðnám lengir bæði endingu gíra sem og olíunnar.
Umbúðir: 100ml, 1, 5 og 10 ltr.
Teflon smurfeiti fyrir hitastig upp að +280°C. Brennur ekki né myndar ösku í legum og fóðringum.
Umbúðir: 400 ml. og 10 ltr.
Smurfeiti “Low Speed” með tefloni. Missir eingöngu 3% smureiginleika sinna ofan í vatni auk þess að vera gríðarlega álagsþolin. Einnig mjög góð sem vírastýris og stólafeiti. Ætluð á 1700 snúninga eða minna. Hitaþol -30 til +175°C. Feitin er einnig til í þykkt LS 1 sem er þynnri feiti, notuð yfir kaldasta tímann.
Umbúðir: 400 ml.


