|
Novadan framleiðir yfir 4000 vörutegundir til þrifa fyrir allan iðnað með sérstaka áherslu á matvælaiðnaðinn. Vöruúrvalið er í stöðugri þróun til að mæta kröfum viðskiptavina um áhrifameiri og umhverfisvænni vöru. Allar vörur eru þróaðar og gæðaprófaðar í rannsóknarstofu Novadan í Kolding, Danmörku. |
Foam 130 er öflugt kvoðuhreinsiefni. Þetta er basískur yfirborðshreinsir sem, vegna sérstakrar efnasamsetningar, hentar vel í öll þrif og á mjúkan málm s.s. ál. Hentar vel í allar gerðir matvælavinnslu.
Umbúðir: 20 og 200 ltr.
Foam 136 er öflugt klórkvoðuefni sem hentar vel í alla matvælavinnslu. Vinnur vel á erfiðum óhreinindum s.s. fitu og prótein.
Umbúðir: 20 og 200 ltr
Mjög öflugt klórkvoðuefni
Foan 226 er mjög sterkt basískt hreinsefni sem hentar á vel á öll erfið óhreinindi. Efnið hentar sérstaklega vel í reykofna með meiru.
Umbúðir: 20 ltr
Bílasápa sem myndar örþunna varnarfilmu á bílunum við reglulegan þvott. Mjög góð sápa fyrir atvinnubíla, rútur og bílaleigubíla.
Umbúðir: 27 og 200 ltr
Novaclean er alhliða milt iðnaðar og kvoðuhreinsiefni. Frábært á erfið gólfóhreinindi sem og til þrifa í hesthúsum, fjósum og við fugla og svínaeldi.
Umbúðir: 20 ltr.

