|
|
Virkon Perasafe er mjög öflugt sótthreinsiefni til að hreinsa t.d. áhöld á skurðstofum og öll áhöld sem þarf yfirleitt að sótthreinsa, t.d. á snyrtistofum. Virkon Perasafe hefur verið prófað af þriðja aðila á rannsóknarstofum og hefur sannarlega sýnt að það drepur m.a. H1N1 svínaflensuveiruna. Virkon Perasafe kemur í töfluformi og hefur engin þekkt áhrif á mannfólk.

Hreinsiefnin frá DuPont eru sérstaklega framleidd með smitvarnir í huga. Virkon S er afrakstur margra ára rannsókna og þróunarstarfs Antec International. Fullyrða má, að Virkon S er mest rannsakaða sótthreinsiefnið á markaðnum og hefur það m.a. verið prófað af breska landbúnaðarráðuneytinu (MAFF) og er viðurkennt til notkunar gegn gin- og klaufaveikiveirunni. Virkon hefur verið prófað gegn H1N1 svínaflensuveirunni af þriðja aðila og útrýmdi veirunni þegar í stað. Virkon S er skaðlaust mönnum og dýrum í 1% upplausn. Prófanir ESB sýna að Virkon S í 1 % lausn er ekki ertandi.

