|
Kemi hefur mikið úrval rekstrarvara fyrir skip og báta. Sem dæmi má nefna smurolíur, koppafeiti, sápur fyrir vélarrúm og millidekk, ýmis bætiefni, heyrnahlífar, eyrnatappa, hjálma, öryggisgleraugu, hálkuvarnarborða, gúmmímottur og fleira. |
Soot Remover er framleitt til varnar á uppsótun og öskuskánmyndum í kötlum og díselvélum. Nýting katla minnkar mjög fljótt ef sót og aska fær að byggjast upp. Dæmi: 1 mm af ösku/sót skán í katli minnkar nýtnina um c.a. 10%. 3 mm lag getur minnkað nýtnina um allt að 50%. Tendrunarhiti í sóti er 600°C. Þetta veldur því að aðeins heitustu hlutar í kötlum og díselvéla-útblásturskerfum ná að brenna sótið burt.
Fljótandi tæringarvari.
Rocor NB Liquid er vökvi, nitrite/borate blanda með lífrænum tæringarvara til nota í vatnskælikerfum. Rocor NB Liquid er mjög virkur tæringarvari til nota í kerfum úr venjulegum járngrunduðum efnum (stál, pottur, steypujárn o.fl.) og járnlausum málmblöndum. Hentar til nota í margskonar vatnskælikerfum.
Sérhannað lífrænt eiturefni sem eyðir örverum og gróðri úr eldsneytisgeymum, lögnum og kerfum.
Eiginleikar efnisins: Eyðir örverum sem valda tæringu, stífla sigti og spíssa og rýra eiginleika eldsneytis og kælivatns. Bicontrol MAR-71 vinnur í laginu milli vatns og eldsneytis, og á yfirborðum eins og samskeytum og gljúpum, einmitt þar sem bakteríurnar vaxa best.
Umbúðir: 5 og 25 ltr.
Descaling liquid er fljótandi sýrugrundað efni með hraðvirka eiginleika sem eyðir skán og úrfellingum í eimurum. Einnig er efnið með tæringarvörn og blotefni (wetting agents). Efnið skal nota með skömmturum til að tryggja reglubundna notkun efnisins og tryggari vörn gegn skelmyndun.
Umbúðir: 25 ltr


