|
3M hefur verið leiðandi í heiminum í þróun og framleiðslu á teipi og lími. Kemi hefur að bjóða breiða línu á þessum vörum og hægt er að sérpanta vörur sem eru ekki á lager. Hafðu samband við sölumann til frekari ráðgjafar. |
Vatnsblandanlegt, lyktarlaust og umhverfisvænt kontaktlím til límingar á plasti, svampi og textíl.
- Sprey 74 er polyurthan lím, hentar vel á plast, gúmmí ofl.
- Sprey 75 er fljótþornandi fljótandi límsprey sem hentar á flest
alla fleti s.s. pappír, tau, málm, plast ofl. Aðeins er límt öðrum megin. - Sprey 77 er permanent, fljótharðnandi límsprey, hentar vel á
m.a. fólíu,gler,keramik filt og kork. - Sprey 90 er permanent límsprey sem hentar vel á m.a.
tré, málma ofl.
Low Melt límstaukar bráðna við mun lægra hitastig en Hot Melt eða 130°C. Mörg efni þola illa hátt hitastig og hreinlega bráðna þegar límið er sett á flötinn. 3M hefur náð leiðandi stöðu á markaði með Low Melt límstaukana. Hentar einkar vel á plast, tré, pappír sem sérstaklega er meðhöndlaður hjá prentsmiðjum, kork, textíl og önnur viðkvæm efni.


