Kemi ehf. hóf starfsemi upphaflega sem Idekemi á Íslandi í september 1991 en breytist í Kemi ehf. árið 1994. Í fyrstu var aðeins 1 starfsmaður, Daði Hreinsson, stofnandi fyrirtækisins. Árið 1994 voru starfsmenn 2 og alveg fram til ársins 2003 þegar 3. starfsmaðurinn bættist við. Vöxtur Kemi hefur verið stöðugur og vöruúrval hefur aukist jafnt og þétt. Starfsmenn Kemi búa yfir mikilli þekkingu á efnum, límum, smurolíum og öryggisbúnaði. Aukin áhersla er nú lögð á kynningu á vörum og þjónustu með auglýsingum, gerð vörulista og nýrrar heimasíðu. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að heimsækja viðskiptavini og veita persónulega þjónustu eins og gert hefur verið frá upphafi. Kemi er flutt í nýtt og mun stærra húsnæði að Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík.
Hjá fyrirtækinu starfa nú 8 manns.
Helstu umboð:
- 3M: Öryggisvörur, lím, límbönd, slípivörur, rafsuðuhjálmar o.fl.
www.3m.com
- Interflon: Teflon smurefni. Sérhæfð smurefni með teflon. Þurrsmurning, hitaþolin smurefni og feiti.
www.interflon.com
- Total-Elf: Smurolíur og smurefni. Total-Elf er eitt af stærstu olíufélögum í heiminum og Elf olíur eru þekktar fyrir gæði og áreiðanleika meðal akstursíþróttamanna þar sem álag á vélar er hvað mest. Elf Moto olíur fyrir mótórhjól eru mjög vinsælar um allan heim.
www.total-dk.com
- Novadan: Hreinsiefni fyrir matvælaiðnað, mjaltakerfi, sérhæfð hreinsiefni og sýrur ýmiskonar.
www.novadan.dk
- IDEKemi: Iðnaðarhreinsiefni, olíuhreinsiefni og sýrur.
www.idekemi.dk
- Megalab: Örverur og bakteríur til niðurbrots fitu í þróm, gildrum og dælustöðvum og til lyktareyðingar.
www.mega-lab.com
- Unitor: Katlabætiefni, meðhöndlun á kælivatni, eldsneyti og sérhæfð hreinsiefni. “International ship service”. Sjá heimasíðu eða fáið vörulista.
www.unitor.com
- Plum: Handhreinsiefni og augnskol. Handþvottakremin frá Plum þykja einstaklega góð og sérstaklega fyrir fólk með exem eða önnur húðvandamál.
www.plum.dk